laugardagur, nóvember 29, 2003

BÚIð 

Jæja þá er þetta í síðasta sinn sem ég Blogga á þessu námskeiði. Ég vil þakka mínum samnemendum það var gaman að lesa og spjalla sérstaklega á spjallinu. Gangi ykkur allt í haginn núna í desember. Þetta hefur fyrir mig verið alveg sérlega erfitt haust og ætlaði ég á tímabili að hætta en ég er svo heppin að vera í góðum hóp í öðrum fögum og þaðan fékk ég mína andlegu næringu svo ég held ótrauð áfram. Og senn koma jólin.

föstudagur, nóvember 21, 2003

HUGSANIR 

"Allt tekur þetta endi" stendur eitthversstaðar skrifað. Og mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég var í staðarlotunni í ágúst. En nú er kominn 21 nóvember og vika eftir í desember. Það er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða og vonandi verða allir jafn glaðir yfir hvíldinni um jólin og ég.
Jólalögin óma í útvarpinu og á 91,9 eru bara jólalög. En ekki er nú veðrið jólalegt.

miðvikudagur, nóvember 12, 2003

STÆRÐFRÆÐI 

Hún er alveg með ólíkindum þessi umræða um stærðfræðina. Hvar sem ég kem í dag þá er maður spurður um álit vegna þess að ég er að kenna þetta námsefni. Ef ég væri foreldri þá skildi ég kannski reiðina þegar kennarar tala svona um námsefnið. EN 'ABYRGÐ KENNARA er gífurleg varðandi það hvernig þeir bera á borð álit sitt á námsefninu. Hvað eiga for. að halda? En hafa ber í huga að það er ekki búið að prufukeyra þetta námsefni svo bíðum við og sjáum hvað setur.

sunnudagur, nóvember 09, 2003

VATNASKÓGUR 

Í síðustu viku fór ég með nemendur úr mínum skóla í Vatnaskóg á vegum skólans og kirkjunnar. Þar eru tveir dagar notaðir sem skemmtidagar á vegum Vatnaskógar og skólanna, svo tekur kirkjan við og er með fermingarfræðslu. Mér finnst þetta afar skemmtileg ferð fór líka í fyrra með 8 bekk. Mér finnst að sem kennari þessa hóps að þá kynnist maður nemendum sínum betur og náið í öðru umhverfi en skólasamfélaginu. Þau eru að því að mér finnst allt öðru vísi en þegar þau eru í skólanum, mikið prúðari og bara eðlileg og eins og manni finnst að þau ættu að vera. Auðvitað er alltaf einhverjir innan um sem fara ekki eftir reglunum en það gerist líka í hópi hinna fullorðinna. ég vona að aðrir kennarar hafi jafn gaman af þessari ferð eins og mér.

miðvikudagur, október 29, 2003

VANTRAUST 

Ég hef oft velt fyrir mér siðferði í íslenskri pólitík. Þegar ég las fréttablaðið í­ morgun þar sem er verið að ræða um borgarstjórann og það sem hann á að hafa brotið af sér í fyrra starfi. Getum við treyst fólki sem við teljum að sé ekki með sterka siðferðisvitund? Þetta með verðsamráð hjá mörgum af stærri fyrirtækjum landsins svo sem hjá olíuinnflutningsfyrirtækjum hefur þorri landsmanna vitað. Þetta geta þeir í ljósi einokunar sinnar. Þeir sem telja það tilviljun að bensinið kostar það sama hjá öllum hvar eru þeir með sína hugsun? Ég tel að borgarstjóri hafi vitað þetta alveg eins og ég, ef ekki þá tel ég hann ekki traustsins verður.

fimmtudagur, október 23, 2003

ALLT LEGIÐ NIÐRI 

Hjá mér hefur allt mitt líf legið niðri (svo ég noti nú tölvumállýsku) vegna veikinda á sjálfri mér. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ eitthvað sem heitir pest um ævina því ég hef haft því láni að fagna að vera mjög heilsuhraust. En nú verður maður að bretta upp ermar og vera duglegur. Spjallið hjá okkur í upplýsingatækninni finnst mér mjög skemmtilegt og gaman að geta haft skoðanaskipti við samnemendur sína þar. Umræðuefnin eru líka þess eðlis að þau hafa höfðað til okkar kennaranema. Takk fyrir Salvör þetta er skemmtileg leið til að hafa samskipti við félaga sína, sérstaklega þegar maður er í fjarnámi.

miðvikudagur, október 15, 2003

Allt á góðu róli 

Jæja þá er bara að halda áfram og þá er það glæruverkefnið næst. Það sem mér finnst oft erfiðast er að ákveða mig hvað það er sem ætla að fjalla um. Fyrst í stað eins og áður hefur komið fram ætla ég mér að byggja kastala en þegar ég sé að venjulegt hús dugir alveg þá er að koma sér að verki og byrja bara. Efnið sem ég hafði hugsað mér í glæruverkefnið er tengt þróunarvinnu sem er í skólanum sem ég kenni í. Ég er reyndar bara að byrja þetta þróunarstarf en ég geri hvað ég get varðandi glæruverkefnið.

þriðjudagur, október 14, 2003

Annað en áætlað var 

Þá er vefleiðangurinn kominn að mestu inn á skilasíðuna mína. En ekki var hann nú um það efni sem ég ætlaði mér í fyrstu. Alltaf skal ég þurfa að velja eitthvað sem er frekar mikil vinna í eða það á að vera svo flott að það er frekar erfitt uppsetningar. En það sem ég ætlaði mér í fyrstu var svo teigjanlegt svo að ég valdi vefleiðangur um ís og ef þið viljið vita allt um ís þá gjörið þið svo vel.

mánudagur, október 13, 2003

Blogg og Spjall. 

Núna er maður svolítið áttavilltur þegar bæði bloggið og spjallið er komið inn. Ennþá er bloggið mikið auðveldara, en á spjallinu fer fram mikil og skemmtileg umræða um allskyns málefni.

miðvikudagur, október 08, 2003

Vefleiðangur sem vefst hefur fyrir skapara sínum. 

Ekki hef ég nú verið dugleg að blogga undanfarið og eru ýmsar ástæður fyrir því. En vefleiðangurinn minn verður vonandi að veruleika í þessari viku. Hann á að vera um höfuðborgir í Evrópu og tilheyrir þar af leiðandi landafræði. Nemendur eiga að kynna sér höfuðborgir og sögu þeirra og merka staði. Þetta er fyrir 7-10 bekk og þarna eiga þau að geta kynnt sér það sem þau vildu helst gera ef þau færu til viðkomandi höfuðborgar. Mér fannst gaman af því að í fréttum á stöð tvö í gær þá var spurt um hvaða rvær borgir hefðu verið sameinaðar í eina borg og er sú borg höfuðborg síns lands í dag en það voru Buda og Pest sem voru sameinaðar í Budapest.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?